Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

FJÖLMIÐLASTRÍÐ!!!!!!!!

Verð að segja að mér finnst gagnrýni okkar í alþjóða fjölmiðlum á Breta of lítill. Víetnam, Kóreu stríðið, WW2, Írak. voru öll unnin í fjölmiðlum við hljótum að geta unnið eitt ice-save mál. Okkar fólk eða stjórnmálamenn Bláir, Rauðir, Grænir verða allir að leggjast á eitt til að gera sem best úr þessu og  leggjast á fjölmiðlana CNN,BBC, allt heila klabbið og kennum Bretum um allt.

 

Á endanum kemur þetta niður á almenningáliti hverjum þetta er að kenna stjórnmálamenn eru á eftir atkvæðum og þeir joina málstaðinn eftir almenningsáliti (hórur sem þeir eru).það skiptir engu hvað lög segja þeim er bara breytt eftir hentugleika. Svona í hnotuskurn.

 

Brgds

Hjalli


mbl.is Jóhanna gagnrýnir Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

bara nokkur hundruð svona mánuðir í viðbót

þurfum bara um 400 mánuði í viðbót og við gætum átt fyrir eitthvað af þessum skuldum. en annars er þetta vitanlega jákvætt. ísland er fullt af snillingum og við verðum bara að virkja það. ég myndi vilja sjá Malt og appelsín flutt út allir sem hafa prófað hjá mér geta ekki fengið nóg. Íslenski vodkin, fiskeldi, Lýsi, lambakjöt, súkkulaði, Rafmagn, fáum inn project eins og gagnaver, selju ísland betur sem land fyrir ferðaþjónustu. hættum að veiða hvali (það er ekki eins og við séum að borða hval sjálf). þetta er bara brot af broti sem við ættum að gera.
mbl.is Vöruskipti hagstæð í 13 mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri eða Hægri

Hef verið að spá í þetta. mér finnst stjórnmál á íslandi farin að verða svona eins og í Bandaríkjunum. Left or Right, Democrat or Republican. Blár eða Rauður. Þetta snýst eingöngu um flokka ekki málefni eða fólkið í framboði. Hversu margir íslendingar kjósa en gætu ekki nefnt menn í fimm fyrstu sætum. eða geta sagt hvað séu þeirra málefni. En svona er þetta bara það er nóg að líta til Ameríku núna og þá sjáum við hvernig ísland verður í framtíðinni. t.d. finnst mér fólk vera farið að bæta vel utan á sig. (Ef þú tekur þetta eitthvað til þín farðu þá ræktina.)

 

Vinstri eða Hægri

Vinstri stjórn virðist engan veginn geta tekið á þessu vandamáli og hreinlega ræður ekkert við þetta. Eftir þetta kjörtímabil (ef þeir halda stjórn það er að segja) tel ég að vinstri stjórn muni ekki eiga séns í næstu kosningum þar sem öll vitleysan verður þessum tveim flokkum kennt um og hvernig hægri menn hefðu gert betur. Tel að dagar vinstri manna í stjór séu búnir.

Hægri menn þetta eru vitanlega ekkert annað en ræningjar og hef lesið mikið frá hægri mönnum hérna bölva núverandi ríkistjórn en þeir framkvæmdu stæðsta bankarán í sögu mannkyns held ég. en því miður fyrir okkur eru hægri menn betur í stakk búnir til að ná samningum en vinstri menn. það er bara ekki hægt að senda vinstri menn á móti peningamönnum þar sem þeir innst inni fyrirlíta hvern annan.

 

Best væri að senda virkilega snjalla samningamenn og tala við kínverjana þeir eiga stæðsta forða dollars sem til er. Sádarnir eiga eitthvað líka.

annars er enginn skyndilausn í þessu máli, og ísland er hreinlega búið að mála síg inni í horn og við verðum bara að bíða þangað til málinginn þornar.

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband